Psalms 107

1Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. 2Svo skulu hinir endurleystu Drottins segja, þeir er hann hefir leyst úr nauðum 3og safnað saman úr löndunum, frá austri og vestri, frá norðri og suðri. 4Þeir reikuðu um eyðimörkina, um veglaus öræfin, og fundu eigi byggilegar borgir, 5þá hungraði og þyrsti, sál þeirra vanmegnaðist í þeim. 6Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, hann bjargaði þeim úr angist þeirra 7og leiddi þá um slétta leið, svo að þeir komust til byggilegrar borgar. 8Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn, 9því að hann mettaði magnþrota sál og fyllti hungraða sál gæðum. 10Þeir sem sátu í myrkri og niðdimmu, bundnir eymd og járnum, 11af því að þeir höfðu þrjóskast við orðum Guðs og fyrirlitið ráð Hins hæsta, 12svo að hann beygði hug þeirra með mæðu, þeir hrösuðu, og enginn liðsinnti þeim. 13Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, hann frelsaði þá úr angist þeirra, 14hann leiddi þá út úr myrkrinu og niðdimmunni og braut sundur fjötra þeirra. 15Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn, 16því að hann braut eirhliðin og mölvaði járnslárnar. 17Heimskingjar, er vegna sinnar syndsamlegu breytni og vegna misgjörða sinna voru þjáðir, 18þeim bauð við hverri fæðu og voru komnir nálægt hliðum dauðans. 19Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, hann frelsaði þá úr angist þeirra, 20hann sendi út orð sitt og læknaði þá og bjargaði þeim frá gröfinni. 21Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn, 22og færa þakkarfórnir og kunngjöra verk hans með fögnuði. 23Þeir sem fóru um hafið á skipum, ráku verslun á hinum miklu vötnum, 24þeir hafa séð verk Drottins og dásemdir hans á djúpinu. 25Því að hann bauð og þá kom stormviðri, sem hóf upp bylgjur þess. 26Þeir hófust til himins, sigu niður í djúpið, þeim féllst hugur í neyðinni. 27Þeir römbuðu og skjögruðu eins og drukkinn maður, og öll kunnátta þeirra var þrotin. 28Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, og hann leiddi þá úr angist þeirra. 29Hann breytti stormviðrinu í blíðan blæ, svo að bylgjur hafsins urðu hljóðar. 30Þá glöddust þeir, af því að þær kyrrðust, og hann lét þá komast í höfn þá, er þeir þráðu. 31Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn, 32vegsama hann á þjóðarsamkomunni og lofa hann í hóp öldunganna. 33Hann gjörir fljótin að eyðimörk og uppsprettur að þurrum lendum, 34frjósamt land að saltsléttu sakir illsku íbúanna. 35Hann gjörir eyðimörkina að vatnstjörnum og þurrlendið að uppsprettum 36og lætur hungraða menn búa þar, að þeir megi grundvalla byggilega borg, 37sá akra og planta víngarða og afla afurða. 38Og hann blessar þá, svo að þeir margfaldast stórum og fénað þeirra lætur hann eigi fækka. 39Og þótt þeir fækki og hnígi niður sakir þrengingar af böli og harmi, 40þá hellir hann fyrirlitning yfir tignarmenn og lætur þá villast um veglaus öræfi, 41en bjargar aumingjanum úr eymdinni og gjörir ættirnar sem hjarðir. 42Hinir réttvísu sjá það og gleðjast, og öll illska lokar munni sínum. 43Hver sem er vitur, gefi gætur að þessu, og menn taki eftir náðarverkum Drottins.
Copyright information for Icelandic